Valdimar Briem, dr. phil.
vbriem@akademia.is

Fræðilegur ráðgjafi um ýmis félagsleg vandamál, fræðsluskipulag, umferð og slysavarnir. Löggiltur sálfræðingur á Íslandi og í Svíþjóð. Associated research professor (em.) við sálfræðideild Háskólans í Lundi í Svíþjóð. Áður forstöðumaður fræðaseturs við Lundarháskóla fyrir rannsóknir á huglægum þáttum í atferli og öryggi barna og unglinga, einkum orsökum og sálfræðilegum áhrifum slysa og áfalla. Vann að skýrslugerð um umferðaröryggi barna fyrir umferðarnefnd sænska þingsins (Riksdagen). Ráðgjafi á sviði umferðaröryggis og -fræðslu fyrir Evrópusambandið og íslenska innanríkisráðuneytið (áður „samgönguráðuneyti“). Hefur haft umsjón með ýmsum rannsóknarverkefnum í samvinnu við Háskóla Íslands, Umferðarráð, Umferðarstofu, Háskólasjúkrahús, menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti (nú „innanríkisráðuneyti“). Forstöðumaður Rannókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi frá júlí 2009 til október 2010.

Nánari upplýsingar um fyrri störf, menntun og ritverk má finna undir Ferill og ritverk, og okkrar nýlegar skýrslur má finna undir Fyrri skýrslur og greinar. Nýjustu ritverkin, pistla og fræðigreinar, má einnig nálgast hér á þessari heimasíðu.

Á heimasíðu Háskólans í Lundi eru auk þess nánari upplýsingar um greinar og skýrslur úr mörgum fyrri rannsóknum. Farið inn á viðeigandi síðu á heimasíðu Lundarháskóla, sláið inn Briem og ýtið á Sök (sbr. myndina hér að neðan). Þá kemur upp listi yfir ritverkin, sem skráð eru við háskólabókasafnið í Lundi, í sumum tilfellum einnig aðgangur að skýrslunum.

Pasted Graphic 2